3.2.2008 | 19:46
Lítið að gera á þingi!
Ég var í New York þegar lögleitt var vændi á Íslandi. Hvers vegna í öskupunum var það gert? Ég fékk mikið af spurningum og fólk þarlendis var undrandi yfir þessu. Ég var jafn undrandi og hafði engin svör.
Ég var líka jafn undrandi þegar stuðningsmaður frumvarpsins Kolbrún Halldórsdóttir kom fram á þingi með tillögu um mótvægsaðgerðir við þessar ólánsömu konur. Hvers lags tvískinnungur er þetta? Hafa alþingismenn lítið að gera? Það var lögleitt að konur vinni fyrir sér með vændi og þeir sem kaupa eru lögverndaðir. En pimparnir mega ekki gera út á Íslandi og þess vegna eru þeir erlendis með fjölskyldu kvennanna í gíslingu. Nú hefur Jóhanna Sigurðardóttir skipað í starfshóp alls 10 manns til að rannsaka málið.
10 manns í nefnd í mótvægisaðgerðir sveiattan! Hefði ekki verið nær að snúa sér að velferðarmálum hér heima? Leiðrétta kjör gamals fólks og öryrkja frekar en að standa í svona tvískinnungi?
Um bloggið
Stefana Gunnlaug Karlsdóttir
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 307
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.